Múrarar og Sundhöll Reykjavíkur

Í tilefni þess að Sundhöll Reykjavíkur var að opna aftur eftir gagngerar endurbætur og viðbyggingu þá langar okkur að fjalla örlítið um aðkomu múrara að byggingu hússins. Sundhöllin átti merkisafmæli á síðasta ári en hún fagnaði 80 árum. Múrarafélag Reykjavíkur átti einnig stórafmæli en það varð 100 ára á síðasta ári. Það var stórmerkilegt starf sem múrarar lögðu á sig við byggingu þessa friðaða húss.
Þorsteinn Löve múrari var einn af þeim sem unnu við byggingu Sundhallarinnar. Þorsteinn fæddist 1910 og lést árið 2004. Hann var 13 ára þegar hann hóf störf við múrverk og lauk sveinsprófi í múraraiðn frá Ísafirði 1928, fyrstur manna, þá 18 ára. Þorsteinn sagði svo svo frá í blaðaviðtali að sama ár og hann lauk prófi fluttist hann suður til Reykjavíkur. Meðal þeirra húsa sem Þorsteinn Löve vann við að byggja í Reykjavík var Sundhöllin og þá var Barónstígurinn ysta og lengsta gatan í bænum. „Mér finnst gaman að því þegar ég kem í Sundhöllina núna og veit að ég hlóð sjálfur klefann þar sem ég er að skipta um föt.“
Eins tók hann fram að múrverk hafi verið erfiðisvinna, einkum fyrstu árin á starfsævi þegar steypa og múrblanda var hrærð í höndunum. Þorsteinn segist hafa verið með fyrstu mönnum í faginu til að eignast hrærivélar til að hræra múrblöndu, nokkru eftir að farið var að hræra steypu í vélum.
Þessir búningsklefar sem Þorsteinn og hans félagar hlóðu eru núna friðaðir en menntamálaráðherra friðaði þá 20. desember 2004 samkvæmt lögum um húsafriðun. Friðunin tekur til ytra og innra borðs laugar, búningsklefa og sturtuklefa. Saga Sundhallarinnar nær yfir mörg ár en í æviminningum Knud Zimsen, bæjarverkfræðings 1902, kemur fram að hann gerði tillögu að byggingu yfirbyggðrar sundlaugar í Reykjavík, tillagan fékk ekki hljómgrunn í bæjarstjórn Reykjavíkur. Árið 1927 kom Jónas frá Hriflu með þá hugmynd að ríkissjóður legði fram 50 þúsund krónur í sundhallarbyggingu gegn því að bæjarsjóður legði fram jafn háa upphæð. Tilllagan var ekki samþykkt. Árið 1928 bar ríkisstjórnin fram frumvarp um byggingu Sundhallar í Reykjavík. Frumvarpið hljóðaði uppá að ríkið leggði fram 100 þúsund krónur og að borgin legði fram annað eins auk lóðarinnar.
Fyrsta tillaga Guðjóns Samúelssonar arkitekts var bygging í burstabæjarstíl. Laugin átti að vera þrískipt, ein laugin átti að vera fyrir börn, önnur stærri fyrir íþróttamenn, sú þriðja átti að vera sjólaug. Hætt var við að byggja eftir fyrstu tillögu Guðjóns, en árið 1929 var byrjað á að reisa Sundhöllina í þeirri mynd sem hún er í dag eftir teikningum Guðjóns. Í nokkur ár gekk hvorki né rak með bygginguna vegna fjárskorts. Sundhöllin var tekin í notkun 23. mars árið 1937 og var tæpir 2.700 fermetrar að stærð. Í henni voru sundlaug, barnalaug, heitir pottar, eimbað og stökkbretti auk aðstöðu til líkamsræktar.
Árið 2013 var haldin samkeppni um hönnun nýrrar viðbyggingar við Sundhöllina. Í byrjun árs 2015 var byrjað að vinna við aðstöðu og jarðvinnu og síðan tók uppsteypan við og aðrir verkþættir. Framkvæmdir tóku um eitt og hálft ár og sundlaugin var síðan lokuð almenningi og unnið var í að gera aðgengi fyrir fatlaða betra þannig að allir hafa nú aðgang að lauginni. Sundhöll Reykjavíkur var síðan aftur opnuð formlega þann 3. desember. Gaman er að geta sýnt hér nokkrar myndir af þessum múrurum sem unnu við byggingu þessa merka húss, en eins og einn fastagestur sundstaðarins frá upphafi orðaði það „Þetta er sá staður í Reykjavík, sem er mesti dásemdar- eða draumastaður sem til er að mínu viti og hér var alltaf mikil gleði, glatt á hjalla, sérstaklega er það ánægjulegt að gamla húsið stendur fyrir sínu enn þá eins og það var.“ Það eru góð meðmæli á starfi múrara og annara sem unnu við byggingu Sundhallar Reykjavíkur.
Á efri myndinni standa múrarar á botni Sundhallarinnar. F.v. Þorsteinn Löve múrari, Logi Eldon múrari, Guðmundur Runólfsson trésmiður, Einar Þorvaldsson múrari og skákmaður, Jón Hannesson múrari, Jóhannes Bergsteinsson múrari, Björn Jónsson múrarameistari, Harald Bjarnason múrari, ónafngreindur, Vilberg Hermannsson múrari og Jón Halldórsson verkamaður.
Á þeirri neðri má sjá múrara hlaða upp veggi og flísaleggja í búningsklefum Sundhallar Reykjavíkur.
Birtist í fréttabréfi FIT í janúar 2018.