Umsóknir um sumarúthlutun opnar 10. febrúar

orlofsmynd

Sumarútleiga orlofshúsa 2020 (júní-ágúst)
Mánudaginn 10. febrúar kl. 13:00 er opnað fyrir umsóknir á orlofshúsasíðu FIT þar sem hægt er að sækja um sumarúthlutun.
Mánudaginn 24. febrúar er lokað fyrir umsóknir um sumarúthlutun.
Föstudaginn 28. febrúar eiga allir að hafa fengið svar við orlofsumsókn sinni.
Mánudaginn 9. mars lýkur greiðslufresti þeirra sem hafa fengið úthlutað.
Miðvikudaginn 11. mars klukkan 13:00 eru ógreiddar og óúthlutaðar vikur settar á orlofsvefinn og þá gildir fyrst kemur fyrst fær.

orlofsmynd

Eingöngu er hægt að sækja um á netinu.
Þetta gildir fyrir alla orlofskosti sem sækja þarf um. Ef umsóknin vefst eitthvað
fyrir fólki má senda tölvupóst á fit@dev.fit.is eða fá upplýsingar í síma 540-0100.
Ekki er tekið við umsóknum í síma. Þegar sótt er um rafrænt þarf að innskrá sig með íslykli eða rafrænum skilríkjum og
velja viðeigandi mánuð og tímabil í því húsi sem leigja á.
Félagsmenn eru hvattir til að sækja um sem flesta orlofskosti til að auka möguleika sína.
Sumarleiga orlofshúsa innanlands hefst föstudaginn 12. júní og lýkur 21. ágúst.
Leigutímabil er frá kl. 16:00 á föstudegi til 12:00 næsta föstudag.