Nýr orlofshúsabæklingur er kominn út

Orlofsbæklingurinn fyirr árið 2020 er kominn út.
Þar er allar upplýsingar um orlofskosti FIT að finna, m.a.:
Mánudaginn 10. febrúar er opnað fyrir umsóknir á orlofshúsasíðu FIT þar sem hægt er að sækja um sumarúthlutun.
Sumarleiga orlofshúsa innanlands hefst föstudaginn 12. júní og lýkur 21. ágúst.
Leigutímabil er frá kl. 16:00 á föstudegi til 12:00 næsta föstudag.
Ferðavagnar.
Félagsmönnum stendur til boða að kaupa sér afslátt vegna leigu á ferðavagni á orlofsvef FIT.
Í boði verða 30 niðurgreiðslur og kostar 5.000 krónur að fá 25.000 króna afslátt.
Ferðaávísanir.
Líkt og undanfarin sumur verður boðið uppá 30 ferðaávísanir sem hægt verður að nýta hjá Úrval-Útsýn eða Sumarferðum.
Kaupa þarf ferðaávísun í miðasölu á orlofsvef FIT og greiða kr. 5.000.- en í staðinn fæst afsláttarkóði upp á kr. 35.000.- sem sleginn er inn við kaup á ferð hjá annarri hvorri ferðaskrifstofunni.
Afslátturinn gildir í ferðir á tímabilinu maí til september.
Opnað verður fyrir sölu mánudaginn 11. febrúar og gildir strax að fyrstur kemur, fyrstur fær. Aðeins 30 ferðaávísanir eru til sölu.
Miðasala.
Minnum einnig á að á „miðasala“ á orlofsvef FIT verður hægt að kaupa afsláttarmiða fyrir hótelgistingu, veiðikortið, golfkortið, útilegukortið og fleira ef samningar takast um góð kjör.
Afslættir til félagsmanna.
Munið að taka kortið með í fríið, því að félagsskírteinið veitir afsláttarkjör í mörgum fyrirtækjum um allt land gegn framvísun þess. Hægt er að kynna sér alla afsláttarmöguleika með því að fara inn á heimasíðu FIT, mínar síður og velja afslættir.
Húsið í Orlando.
Opnað verður fyrir leigu á húsinu í Orlando á Flórída fyrir árið 2021 mánudaginn 2. mars kl.13:00 til félagsmanna FIT.
Minnt er á að húsið rúmar 12 manns og sólarhringsleigan verður kr. 12.000.- auk þrifagjalds kr. 15.000.- fyrir hverja leigu. Staðgreiða þarf leiguna en bókanir og greiðsla er á orlofsvef FIT.
Leiga hefst kl. 16:00 á komudag og lýkur kl. 10:00 að morgni brottfarardags.