Trúnaðarmannanámskeið FIT í mars

Mars-mánuður verður sannkallaður trúnaðarmanna-mánuður hjá Félag iðn-og tæknigreina. Námskeiðin verður sameiginleg með öðrum fagfélögum að Stórhöfða 31.
Þeir sem hafa áhuga og/eða eru trúnaðarmenn á sínum vinnustað eru vinsamlegast beðnir um að hafa sambandi í síma 540-0100 eða að senda á okkur tölvupóst á fit@dev.fit.is
Kennarar verða; Sigurlaug Gröndal og starfsmenn fagfélaganna. Nemendur fá í hendur námsgögn sem notuð eru fyrir hvern námsþátt. Á innri vef fara fram samskipti nemenda og leiðbeinenda. Athugið að skráningu lýkur viku fyrir fyrsta námskeiðsdag. Nemendur þurfa að skrá sig inn á innri vef Félagsmálaskólans, www.felagsmalaskoli.is Stofna aðgang með annaðhvort íslykli, rafrænum skilríkjum eða lykilorði. Nemendur munu geta fylgst með námsframvindu sinni inni á innri vef skólans. Þar munu þeir einnig fylla út námsmat og sækja viðurkenningarskjölin að námskeiði loknu. Munið að nauðsynlegt er fyrir nemendur að hafa meðferðis fartölvu, ipad eða símann sinn á námskeiðin, þar sem námsefni verður meira eða minna rafrænt. Fagfélögin greiða fyrir þátttöku sinna félagsmanna og ókeypis matur og kaffi á meðan námskeiðin fara fram. Félagsmenn eiga að halda launum frá sínum launagreiðanda á meðan námskeið eru.
Eftirfarandi trúnaðarmannanámskeið verða í boði hjá FIT.
Trúnaðarmannanám 1. hluti 5.- 6. mars.
Á námskeiðinu er meðal annars farið ítarlega í hlutverk stéttarfélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkaði. Einnig er hlutverk trúnaðarmannsins rætt og hvernig hann eigi að vinna með umkvörtunarefni.
Trúnaðarmannanám 3. hluti 16.- 17. mars.
Farið er í grunntölur launa og útreikninga á launaliðum. Farið er í mikilvægi launaseðla og kunnáttu að yfirfara þá. Einnig er farið í almannatryggingakerfið og uppbyggingu og hlutverk lífeyrissjóða.
Trúnaðarmannanám 4. hluti 30.- 31. mars.
Kynning á Virk-starfsendurhæfingarsjóðnum og starfi ráðgjafa hans. Kynning á Vinnueftirlitinu-skyldum atvinnurekenda í vinnuvernd og trúnaðarmanna. Farið er í hvernig sjálfstraust einstaklinga hefur áhrif á samskipti. Nemendur kynnast áhrifum skorts á sjálfstrausti og ýmsar birtingamyndir þess. Nemendur kynnast leiðum til að efla sjálfstraustið og hvaða aðstæður geta haft áhrif á minnkandi sjálfstraust.
Trúnaðarmaður stéttarfélags.
Skýrt er kveðið á um hlutverk trúnaðarmanns í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Samkvæmt 9. gr.laga um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938 er það hlutverk trúnaðarmanns að gæta þess að gerðir samningar séu haldnir af atvinnurekanda og fulltrúum hans og að ekki sé gengið á félagslegan eða borgaralegan rétt verkamanna. Ellefti kafli kjarasamninga fjallar einnig um trúnaðarmenn.
Trúnaðarmaður er fulltrúi stéttarfélagsins á vinnustaðnum og sem slíkur er hann tengiliður félagsins og starfsmannanna. Hlutverk trúnaðarmanna á vinnustöðum er mjög mikilvægt, bæði fyrir félagsmenn og ekki síst fyrir stjórn félagsins og starfsmenn.