IÐAN kynnir vefnámskeið

IÐAN fræðslusetur hefur gefið út vefnámskeið og verður aðgangur að þeim endurgjaldslaus fyrir alla sem áhuga hafa út marsmánuð. Námskeiðin sérðu á forsíðu vefs IÐUNNAR.
Vefnám er ný fræðsluleið hjá IÐUNNI þar sem kennslan fer alfarið fram með myndskeiðum á vefnum.
Skráning á vefnámskeið fer fram á sama hátt og skráning á önnur námskeið og að skráningu lokinni opnast fyrir aðgang að viðkomandi námskeiði á mínum síðum þátttakanda.
Vefnámskeið er yfirleitt opið í 30 daga frá skráningu og innan þess tíma geta þátttakendur ráðið sínum námshraða. Aðstoð vegna vefnámskeiða veitir IÐAN í tölvupóstinum idan@idan.is.
Fjarnámskeið bygginga- og mannvirkjasviðs (ókeypis)
Næstu fjórar vikurnar verður námsframboð og kennsla með öðrum hætti en vant er.
Samkvæmt tilmælum stjórnvalda verða felld niður staðbundin námskeið en boðið verður þess í stað upp á fjarkennslu þar sem því verður viðkomið.
Dagskrá námskeiða hjá bygginga- og mannvirkjasviði hefur verið endurskoðuð með tilliti til þessa.
Nú sem áður eru námskeiðin öllum opin og verða ókeypis fyrir notendur meðan þetta óvanalega ástand varir.
Þátttakendur skrá sig á síðum námskeiðanna á idan.is. Þeir fá síðan senda slóð í tölvupósti með tengingu inn á námskeiðin og frekari leiðbeiningar.
Fyrstu fjarnámskeiðin sem boðið er uppá hjá Bygginga- og mannvirkjasviði:
Eigin úttektir í byggingaframkvæmdum