Atkvæðagreiðsla um kjarasamning við ÍSAL er hafin

alver

alver

Atkvæðagreiðsla um samkomulag um framlengingu kjarasamnings milli Samtaka atvinnulífsins vegna Rio Tinto á Íslandi hf. annars vegar og VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna, Rafiðnaðarsambands Íslands vegna Félags íslensra rafvirkja og Félags rafeindavirkja og FIT – Félags iðn- og tæknigreina hins vegar hefst 24. mars 2020 klukkan 10:00.

Smelltu hér til að kjósa með rafrænni auðkenningu eða íslykli.

Rafræn atkvæðagreiðsla um samkomulag um framlengingu kjarasamnings milli Samtaka atvinnulífsins vegna Rio Tinto á Íslandi hf. annars vegar og VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna, Rafiðnaðarsambands Íslands vegna Félags íslensra rafvirkja og Félags rafeindavirkja og FIT – Félags iðn- og tæknigreina hins vegar hefst þriðjudaginn 24. mars 2020 kl. 11:00 og stendur til kl. 10:00 föstudaginn 27. febrúar 2020.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna allra félaganna fer fram á skrifstofu Verkalýðsfélagsins Hlífar að Reykjavikurvegi 64, 220 Hafnarfirði:

Þriðjudaginn 24. mars frá 10:00 til 13:30

Miðvikudaginn 25. mars frá 10:00 til 13:30

Fimmtudaginn 26. mars frá 10:00 til 13:30

Vegna COVID-19 faraldsins eru félagsmenn hvattir til þess að greiða atkvæði sitt með rafrænum hætti.

ATH! Skrifstofa Hlífar er formlega lokuð fyrir heimsóknir, vegna COVID-19 faraldursins, þannig að þeim sem geta með engu móti greitt atkvæði rafrænt, er bent á að hringja á skrifstofu Hlífar 510 0800, eða í Guðmund Rúnar í síma 772 0325 til að tryggja að opnað verði fyrir þeim.

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér vel innihald samningsins og nýta atkvæðisrétt sinn.

Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða kynntar mánudaginn 30. mars 2020.