1. maí 2020

Yfirskrift 1. maí í ár er „Byggjum réttlátt þjóðfélag“
Í ár eru aðstæður óvenjulegar. Engar kröfugöngur, engir baráttufundir eða 1. maí kaffi.
Þrátt fyrir það viljum við minna á að baráttan stendur yfir og samstaða er mikilvæg sem aldrei fyrr.
Undanfarnar vikur hafa verið vægast sagt óvenjulegar og annasamar. Miklar breytingar hafa orðið í kjölfar nýrra kjarasamninga, þar sem fara saman launahækkanir og stytting vinnutíma og útfærsla þess. Mikil vinna hefur farið í að kynna þær breytingar fyri félagsmönnum við þessar einkennilegu aðstæður sem sköpuðust á Covid tímum og með lokaða skrifstofu vegna þess.
Í fyrsta skipti síðan 1923 getur íslenskt launafólk ekki safnast saman á 1. maí til að leggja áherslu á kröfur sínar.
Við þessu er brugðist með útsendingu frá sérstakri skemmti- og baráttusamkomu sem flutt verður í Hörpu að kvöldi 1. maí og sjónvarpað á RÚV kl. 19:40.
Landsþekktir tónlistarmenn, skemmtiatriði og hvatningarorð frá forystu verkalýðshreyfingarinnar einkenna þennan viðburð sem verður að teljast sögulegur.
Meðal listamanna sem koma fram eru Ragnheiður Gröndal, Bubbi Morthens, Amabadama, Jói P og Króli, Ellen Kristjáns og Auður, Jakob Birgisson uppistandari, KK og Lúðrasveit verkalýðsins.
Þar sem engar verða kröfugöngurnar verður hægt að búa til sitt eigið kröfuspjald á Facebook og sýna stuðning sinn við baráttu verkalýðshreyfingarinnar í verki með því að merkja prófílmyndina sína 1. maí.
Við hvetjum til þátttöku í baráttudeginum á Facebook og svo til áhorfs á RÚV um kvöldið.
Hér er svo Vinnan vefrit sem vert er að skoða.
Stjórn og starfsfólk Félags iðn- og tæknigreina sendir baráttukveðjur til félagsmanna sinna og fjölskyldna þeirra.