Orlofsuppbót 2020

Orlofsuppbót greiðist þann 1. júní. Orlofsuppbótin 2020 er kr. 51.000.
Orlofsuppbótin, að meðtöldu orlofi, greiðist miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu frá 1. maí til 30. apríl.
Öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi 1.maí er greidd orlofsuppbót.
Húsasmiðir og pípulagningamenn í ákvæðisvinnu fá greidda orlofsuppbót líkt og aðrir.
Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla orlofsuppbót.
Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.
Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.