Takmörkum heimsóknir á skrifstofur FIT vegna Covid-19

Við hvetjum félagsmenn til að nýta sér rafræn samskipti við skrifstofur okkar eins og kostur er til að minnka smithættu.
Hægt er að sækja nánast alla þjónustu og upplýsingar frá félaginu rafrænt.
Flestar upplýsingar eru á hér á heimasíðunni og hægt er að senda fyrirspurnir á fit@dev.fit.is eða hringja í síma 540 0100.
Til að sækja um styrki eða kanna réttindi sín í sjóðum félagsins eiga allir félagsmenn að hafa aðgang að mínum síðum og fljótlegast og einfaldast er að nýta þann kost.
Orlofshúsin
Allar upplýsingar um orlofshúsin og leiga á þeim fer fram á Orlofssíðum FIT.
Sjóðir FIT
Upplýsingar um sjóði félagsins.
Sjúkrasjóður
Upplýsingar um styrki úr Sjúkrasjóði FIT
Umsókni um styrki úr Sjúkrasjóði fara í gegnum MÍNAR SÍÐUR. Þar eru einnig allar upplýsingar um þau fylgigögn sem þarf að skila.
Sjúkradagpeningar
Til að sækja um sjúkradagpeninga þarf að skila:
- Útfylltri umsókn.
- Skjúkradagpeningavottorði frá lækni eða heilsugæslu.
- Vottorði atvinnurekanda um að veikindagreiðslum sé lokið.
- Upplýsingum um persónuafslátt.
- 6 síðustu launaseðlum.
Þetta er hægt að senda í tölvupósti til fit@dev.fit.is merkt Sjúkrasjóði
Útfararstyrkur
Til að sækja um útfararstyrk þarf að skila eftirfarandi:
- Útfylltri umsókn
- Yfirlit um framvindu skipta sem gefið er út af sýslumanni.
Þetta má senda í tölvupósti á netfangið: fit@dev.fit.is merkt sjúkrasjóði.
Menntasjóður
Upplýsingar um styrki úr Menntasjóði FIT
Umsóknir um styrki úr Menntasjóði fara í gegnum MÍNAR SÍÐUR. Þar eru einnig allar upplýsingar um þau fylgigögn sem þarf að skila.
Launagreiðendur
Upplýsingar um iðgjaldagreiðslur til félagsins, innheimtuaðila og skilagreinar er að finna hér.