Atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun hjá Rio Tinto hafin

alver
Atkvæðagreiðsla vegna tillögu samninganefndar um aðgerðir til að knýja á um gerð kjarasamnings í álveri Rio Tinto í Straumsvík.

Atkvæðagreiðslan er rafræn og hefst klukkan 12 á hádegi föstudaginn 2. október 2020 í gegnum heimasíður félaganna og lýkur klukkan 13 miðvikudaginn 7. október 2020.
 

alver

KJÓSA HÉR

Þeir félagsmenn stéttarfélaga starfsmanna Rio Tinto á Íslandi hf. sem starfa hjá fyrirtækinu munu dagana 2.-7. október 2020 eiga kost á að greiða atkvæði um boðun vinnustöðvunar. Félagar hvers stéttarfélags, sem eru starfsmenn Rio Tinto á Íslandi hf., munu greiða atkvæði sérstaklega um þá vinnustöðvun sem starfsmenn þess félags taka þátt í, en aðgerðaáætlun er stillt upp sameiginlega af öllum hlutaðeigandi stéttarfélögum. 

Ef þú færð skilaboð um að þú sért ekki á kjörskrá, en telur þig eiga rétt á að greiða atkvæði, sendu tölvupóst á fit@dev.fit.is