Kjarasamningur við Norðurál undirritaður

Nordural

Í gær, þriðjudaginn 13. október var skrifað undir nýjan kjarasamning við Norðurál.

Nordural

Gildistími samningsins er frá 1. janúar 2020 til 31. desember 2024. Samningurinn gildir því afturvirkt frá 1. janúar 2020.

Kjaraviðræður hófust í desember 2019 og hafa því staðið í 10 mánuði. 

Samningurinn er í takt við lífskjarasamningana sem þýðir að vaktamenn munu eiga rétt á greiðslu vegna afturvirkninnar sem nemur um 6,9% af heildarlaunum frá 1. janúar 2020. 

Sú upphæð getur numið í sumum tilfellum um 500 þúsund krónum hjá vaktamönnum.

Hér má skoða samninginn í heild.