Skrifað undir kjarasamning við Ísal

ISAL

Samninganefnd starfsfólks álversins í Straumsvík hefur skrifað undir kjarasamninga við samninganefnd Rio Tinto á Íslandi hf. Efni kjarasamninganna verður nú kynnt starfsfólki sem fær í kjölfarið tækifæri til að greiða atkvæði um endanlegt gildi þeirra. Að baki er löng og ströng samningalota. Sá árangur sem nú hefur náðst er tilkominn vegna þeirrar  samstöðu og hvatningar sem samninganefndin hefur notið frá starfsfólki álversins í öllu því ferli.

ISAL