Kjarakönnun FIT 2020

Búið er að opna rafræna könnun fyrir félagsmenn FIT
Um er að ræða nokkrar spurningar um laun, auk viðhorfs til nokkurra atriða. Þetta er stutt könnun sem tekur einungis nokkrar mínútur að svara.
Mjög mikilvægt er að félagsmenn vandi svör sín, sérstaklega þegar kemur að spurningu um laun, því mikilvægt er að FIT fái skýra og áreiðanlega mynd af launum félagsmanna.
Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þess að svörun verði góð því aðeins þannig verður könnunin marktæk.
Það er hagur félagsins að geta notað könnunina í kjaraviðræðum við atvinnurekendur og einnig félagsmanna að geta leitað til félagsins um áreiðanlegar upplýsingar um launakjör í hverri starfsgrein. Þess vegna eru allir félagsmenn hvattir til að taka þátt og svara þessari könnun.
Þrír heppnir svarendur verða dregnir út í lok könnunarinnar og fá helgardvöl í orlofshúsi FIT innanlands, að eigin vali.