Aðalfundur FIT var haldinn laugardaginn 29. maí

Aðalfundur FIT var haldinn laugardaginn 29. maí sl.
Fundurinn var með hefðbundnu sniði og fór vel fram.
Dagskráin var sem hér segir:
- Skýrsla félagsstjórnar um starf félagsins á liðnu starfsári.
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til umræðu og afgreiðslu.
- Ákvarðanir teknar um ávöxtun sjóða félagsins.
- Kjöri stjórnar lýst.
- Kosning trúnaðarráðs, kjörstjórnar, skoðunarmanna reikninga og uppstillinganefndar
- Kosning endurskoðenda.
- Tillögur um fulltrúa á þing ASÍ og ársfundi lífeyrissjóða sem FIT er aðili að.
- Önnur mál.
Í lok fundarins snæddu fundarmenn hádegisverð og gæddu sér í ístertu í eftirrétt.