Kjarasamningur við ISAL undirritaður

Í kvöld var skrifað undir kjarasamning við ISAL en fyrri samningur rann út þann 1. júní síðastliðinn. Kjarasamningurinn verður kynntur félagsmönnum hjá ISAL síðar í vikunni. Kjarasamningurinn gildir frá 1. júní 2021 til loka árs 2026 og því langur samningstími eftir að gerðir voru tveir stuttir samningar á síðasta ári og því kærkomið fyrir starfsfólk að fá meiri fyrirsjáanleika hvað launakjör varðar en ekki síður fyrir ISAL að hafa stöðugra rekstrarumhverfi. Það verður síðan starfsfólk ISAL sem mun greiða atkvæði um kjarasamninginn.

 

IMG 77931