Atkvæðagreiðsla um samning við ÍSAL

ISAL
Atkvæðagreiðsla hér

 
Þann 22. júní 2021 var skrifað undir kjarasamning milli Samtaka atvinnulífsins (SA) vegna Rio Tinto á Íslandi hf. (ISAL) annars vegar og VM Félags vélstjóra og málmtæknimanna, Rafiðnaðarsambands Íslands vegna Félags íslenskra rafvirkja og Félags rafeindavirkja, FIT Félags iðn- og tæknigreina hins vegar. Samninganefndir allra félaganna hafa nú samþykkt að láta fara fram atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn skv. 5. gr. laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur.
 
Um sameiginlega kosningu félaganna allra er að ræða þar sem einfaldur meirihluti allra greiddra atkvæða í heild ræður því hvort samningurinn er samþykktur eða honum hafnað sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 80/1938 og er kjörskrá sett saman með tilliti til þess. Á kjörskrá eru þeir félagsmenn VM Félags vélstjóra og málmtæknimanna, Félags íslenskra rafvirkja, Félags rafeindavirkja og FIT Félags iðn- og tæknigreina sem starfa hjá Rio Tinto á Íslandi hf.
 
Hægt er að greiða atkvæði í gegnum heimasíður félaganna. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna allra félaganna fer fram á skrifstofu Verkalýðsfélagsins Hlífar að Reykjavikurvegi 64, 220 Hafnarfirði, frá kl 13:00 föstudaginn 25. júní og lýkur föstudaginn 2. júlí kl. 12:00. Hægt er að greiða atkvæði á skrifstofutíma.
Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér vel innihald samningsins og nýta atkvæðisrétt sinn. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða kynntar mánudaginn 5. júlí 2021.
 
ISAL