Kjarasamningur við ÍSAL samþykktur

Rétt í þessu lauk atkvæðagreiðslu um kjarasamning iðnaðarmanna við ISAL. Á kjörskrá voru 98 félagar og greiddu 79 atkvæði eða 80,6% þeirra sem voru á kjörskrá. Atkvæði féllu þannig:

Já sögðu 58 eða 73,4%

Nei sögðu 21 eða 26,6%

Auðir eða ógildir voru 0 eða 0%

Kjarasamningurinn telst því samþykktur. 

Atkvæðagreiðsla um samninginn sem fól í sér framlengingu á kjarasamningi milli Samtaka atvinnulífsins vegna Rio Tinto á Íslandi hf. annars vegar og VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna, Rafiðnaðarsambands Íslands vegna Félags íslenskra rafvirkja og Félags rafeindavirkja og FIT – Félags iðn- og tæknigreina hins vegar hófst þann 25. júní og lauk í morgun.