Ákvæðisvinna – reiknitölur
Verð á einingu vegna ákvæðisvinnu
Um áramótin hækkaði ákvæðisvinnueiningin aukalega um 2,07%, vegna vinnutímastyttingarinnar, til viðbótar við áður umsamda launahækkun upp á 2,5%.Þess ber þó að geta að samningsaðilar munu fara yfir forsendur og áhrif vinnutímastyttingar á ákvæðisvinnuna í janúar og í kjölfarið getur ákvæðisvinnueining tekið breytingum til hækkunar og verður það tilkynnt sérstaklega fari svo að hún taki meiri breytingum. Ný upphæð miðar við virkan vinnutíma upp á 36,15 klst. og 15 mín frá og með 1.1.2022.
Húsasmiðir á kostnaðaraliða – verð á einingu 13.17 kr
Viðbótarálag vegna yfirvinnu húsasmiða 50%
Viðbótarálaga vegna stórhátíðarvinnu húsasmiða 80%
Reiknitala ákvæðisvinnu núrara m. kostnaðarliðum 125.94 kr
Reiknitala ákvæðisvinnu pípulagningamanna m. kostnaðarliðum 15.81 kr
Reiknitala ákvæðisvinnu málara með kostnaðarliðum 9.58 kr
Gildir frá 1. janúar 2022