Greitt úr Námssjóði iðnfélaganna

Greiðslum er nú lokið úr Námssjóði sveitarfélaganna fyrir síðasta ár og millifært á uppgefna bankareikninga þeirra sem rétt eiga á greiðslum úr sjóðnum. Samkvæmt kjarasamningi iðnfélaganna við Samband sveitarfélaga ber að greiða þeim starfsmönnum sveitarfélaga sem fylgja kjarasamningnum styrk úr sjóðnum í febrúar ár hvert sem nemur 1,5% af heildarlaunum síðasta árs.
Ef einhver átti rétt á greiðslu úr sjóðnum en af einhverjum ástæðum fékk ekki greitt má viðkomandi endilega hafa samband við Helgu Björgu í síma 540-0100 eða á netfangið: helga@fagfelogin.is