Nýsveinahátíð

idnadarmannafelag

Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík hefur ákveðið að halda Nýsveinahátíð á vegum félagsins á morgun, þann 5. mars.

Hátíðin mun að þessu sinni fara fram á hótel Natura kl. 14.00 og verður hún á „lágstemmdum nótum“ þetta árið.

Nýsveinum áranna 2020 og 2021 verða veittar viðurkenningar að þessu sinni.

Verndari hátíðarinnar, forseti Íslands, mun verða viðstaddur og auk ráðherra mennta og iðnaðar.

Boðið verður uppá skemmtiatriði.

Ákveðið er að heiðursiðnaðarmaður verður ekki heiðraður að þessu sinni.

Vegna takmörkunar á fjölda gesta mun verða „streymt“ frá hátíðinni, til að gera fleirum kleift að fylgjast með.
Hlekkurinn á streymið er hér en velja skal „Follow link“ þegar komið er inn á síðuna.

Sjá nánar á vef Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík www.imfr.is

idnadarmannafelag