Raunfærnismat fyrir reynslubolta

Raunfærnimat er leið til að meta þá færni og þekkingu sem öðlast má á vinnumarkaði. Matið getur mögulega stytt nám og verið hvatning til að ljúka því. Skilyrði fyrir þátttöku í raunfærnimati eru 23 ára aldur og 3 ára staðfest starfsreynsla í viðkomandi grein. Þessi leið hefur skilað góðum árangri þar sem margir þátttakendur raunfærnimatsins hafa haldið áfram námi og lokið sveinsprófi að loknu matinu.
Þær greinar sem fyrirhugað er að verði metnar í raunfærnimati vorönn 2022 eru m.a. :
Húsasmíði, múriðn og pípulagnir.
Bifvélavirkjun, bifreiðasmíði og bílamálun
Allar nánari upplýsingar um raunfærnimat veita náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR. Fleiri greinum verður bætt við á vorönninni og fer það eftir eftirspurn. Hvetjum alla til að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa IÐUNNAR og fá nánari upplýsingar varðandi það, radgjof(hjá)idan.is eða í s. 590-6400.