1. maí verður haldinn hátíðlegur

Opið hús hjá stéttarfelögunum í Reykjanesbæ 1. maí
Að þessu sinni ætla stéttarfélögin að bjóða félagsmönnum og öðrum íbúum svæðisins á skrifstofur félagnna til að kynna sér starfsemi þeirra í tilefni dagsins 1. maí.
Við verðum með opið hús í Krossmóa 4, 4. hæð milli klukkan 14:00 til 16:00 og munu starfsmenn félaganna taka á móti fólki, bjóða upp á léttar veitingar, kaffisopa og spjall.
Við hvetjum fólk til að kíkja við
Að venju bjóða stéttarfélögin upp á bíósýningu fyrir börnin kl. 15:00
—————————————————
Kröfuganga á Selfossi verður 1. maí – Við Vinnum
Kröfuganga verður kl.11.00
Safnast verður sama við Austurveg 56 og gengið að Hótel Selfoss þar sem dagskrá í tilefni 1. maí fer fram. Boðið verður upp á veitingar í boði stéttarfélaganna. Félagar í Hestamannafélaginu Sleipni munu fara fyrir göngunni.
Kynnir verður Árný Erla Bjarnadóttir formaður FOSS. Aðalræðumaður verður Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands og fulltrúi unga fólksins verður Jóhannes Torfi Torfason nemi í ML. Sönghópurinn Tónafljóð verður með ævintýralega barnaskemmtun og Guðrún Árný söngkona og píanóleikari flytur nokkur lög. Sleipnisfélagar munu teyma undir krökkum í Sleipnishöllinni milli 12.30 – 14.30. Bifreiðaklúbbur Selfoss mætir með glæsikerrur sínar fyrir utan Hótel Selfossog börn fá andlitsmálningu hjá Fimleikadeild Selfoss.
————————————————
Hátíðardagskrá í Vestmannaeyjum verður 1. maí í AKÓGES með kaffisamsæti og dagskrá
Dagskrá:
Kl. 14.00 Húsið opnar
Kl. 14:30 Kaffisamsæti
- maí ávarp flutt
Skólahljómsveit Vestur- og Miðbæjar ásamt Skólalúðrasveit Vestmannaeyja sjá um tónlistaratriðin.
Sendum launafólki hátíðar- og baráttukveðjur í tilefni dagsins
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Vestmannaeyja