ORLOFS- OG DESEMBERUPPBÓT 2022

Orlofsuppbót greiðist þann 1. júní. Orlofsuppbótin 2022 er kr. 53.000.
Orlofsuppbótin, að meðtöldu orlofi, greiðist miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu frá 1. maí til 30. apríl.
Öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi 1.maí er greidd orlofsuppbót.
Húsasmiðir og pípulagningamenn í ákvæðisvinnu fá greidda orlofsuppbót líkt og aðrir.
Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla orlofsuppbót.
Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.
Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.
> Sjá reiknivél fyrir útreikning orlofsuppbótar.
Desemberuppbótin á almennum markaði, að meðtöldu orlofi, er kr. 98.000 og skal greiðast í síðasta lagi 15. desember miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Starfsmenn sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi 1. desember eiga rétt á desemberuppbót.
Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda desemberuppbót líkt og aðrir.
Sá tími sem starfsmaður er í fæðingarorlofi telst sem starfstími við útreikning desemberuppbótar.
Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla desemberuppbót.
Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.
Desemberuppbót, að meðtöldu orlofi, er 98.000. kr. fyrir eftirtalda kjarasamninga:
Samtök atvinnulífsins
Bílgreinasambandið
Félag hársnyrtisveina
Félag pípulagningameistara
Félag ráðgjafarverkfæðinga
Meistarasamband bygingamanna
Ríkið
Snyrtifræðingar
Samband garðyrkjubænda
Upphæð desemberuppbótar í eftirtöldum kjarasamningum er:
Kirkjugarðar Reykjavíkur 109.100. kr.
Landvirkjun 142.226. kr.
Norðurál 244.896. kr.
Orkuveita Reykjavíkur 114.000. kr.
Reykjavíkurborg 106.100. kr.
Samband íslenskra sveitafélga 124.750. kr.
Strætó 106.100. kr.
ISAL – Starfsmaður sem í nóvemberlok hefur unnið samfleytt hjá ISAL í eitt ár eða lengur skal fá greidda desemberuppbót. Orlofs- og desemberuppbót skal nema hálfum byrjunarlaunum 14 launaflokks að viðbættu 2ja ára sveinsbréfsálagi og ferðapeningum. Desemberuppbótin er greitt með nóvemberlaunum. Starfsmenn með skemmri starfstíma og þeir sem ráðnir eru í hlutastarf fá hlutfallslegar greiðslur að undanskildum þeim sem starfa samkvæmt fylgiskjali (19) sjá lið 6.2. kjarasamnings.