Óviðunandi staða – Höldum Garðyrkjuskólanum á Reykjum

landssamtok_lifeyrissjoda_stjorn_print-4.jpg

landssamtok_lifeyrissjoda_stjorn_print-4.jpg

Hilmar Harðarsson formaður félags Iðn- og tæknigreina segir að nú er komin upp óviðunandi staða í Garðyrkjuskólanum á Reykjum, staða sem verður að bregðast við hratt og örugglega. Fyrirhugaður flutningur starfsmenntanáms í garðyrkju á Reykjum yfir í Fjölbrautarskóla Suðurlands (FSu) hefur verið illa undirbúinn, illa kynntur og vanhugsaður.
Nú er ekki annað hægt en að mótmæla harkalega öllum málatilbúnaði og framkvæmd yfirvalda í málinu.

Eyða þarf langvarandi óvissu meðal starfsmanna og nemenda um framtíð skólans, en sú óvissa hefur heldur aukist síðustu daga með uppsögnum fimm starfsmanna á Reykjum.   

Samráðsleysi og vanhugsaðar aðgerðir hafa einkennt málið frá upphafi, lítilsvirðing gagnvart starfsmenntanámi – og raunar iðnnámi öllu. 
Ákvarðanir hafa verið teknar án samráðs, fjármagn ekki tryggt og gengið algjörlega fram hjá þeirri þekkingu og reynslu sem safnast hefur upp um langt skeið bæði hjá fagfélögum í atvinnulífinu og starfsfólki á Reykjum. 

Höggva þarf á hnútinn og er það er skýlaus krafa okkar hjá FIT að Garðyrkjuskólanum á Reykjum verði tryggt fjármagn og aðstaða til þess að takast á við framtíðarverkefni gæna geirans.

 

Hér fyrir neðan er greinargerð frá Ágústu Erlingsdóttur – Námsbrautarstjóri skrúðgarðyrkjubrautar og Berglindi Ásgeirsdóttur – Umhverfisstjóri Reykjanesbæjar

Verður ekkert garðyrkjunám á Íslandi?