Afhending sveinsbréfa

Hótel Hilton Nordica

Fimmtudaginn, 6 október nk. fer fram afhending sveinsbréfa í iðngreinum sem eru innan Félags iðn- og tæknigreina, Bílgreinasambandsins, Byggiðnar, Matvís, Málms, samtaka fyrirtækja í málm og skipasmíðum, VM, félags vélstjóra og málmtæknimanna og viðkomandi meistarafélaga.

Hófið hefst kl. 17:00 og verður haldið á Hótel Hilton Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík í veislusölum A og B. Gengið er inn um aðalinngang á jarðhæð.

Þér er boðið í hófið og að þiggja veitingar í boði félaganna að lokinni afhendingu sveinsbréfa.

Snyrtilegur klæðnaður.

Með kveðjuf.h. meistara- og sveinafélagannaIÐAN fræðsluseturInga Birna Antonsdóttir inga@idan.is

Tilkynna þarf forföll fyrir 3. október nk.
í síma 590-6400 eða á idan@idan.is.