Staða kjaraviðræðna

Staða kjaraviðræðna

Kjaraviðræður við Samtök atvinnulífsins (SA) hófust 20. september síðastliðinn en iðnfélögin ákváðu í vor að ganga sameinuð til viðræðnanna. Flestir kjarasamningar Samiðnar á almennum vinnumarkaði verða lausir 1. nóvember. Samningar við hið opinbera verða hins vegar lausir frá 31. mars á næsta ári.

Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar og Guðfinnur Newman, framkvæmdastjóri félagsins, lögðu land undir fót í ágúst og september og funduðu með öllum aðildarfélögum Samiðnar.

Á fundunum voru áherslur aðildarfélaganna vegna komandi kjaraviðræðna ræddar sem og sýn þeirra á sameiginlega kröfugerð. Í framhaldinu var fundað með miðstjórn Samiðnar þar sem drög að kröfugerðinni voru kynnt og að lokum samþykkt eftir miklar umræður. Hér má sjá kröfugerðina.

Nokkrir formlegir fundir hafa verið haldnir í kjaraviðræðunum við Samtök atvinnulífsins. Á þeim hafa samningsaðilar kynnt sínar áherslur og kröfugerð hefur verið lögð fram. Engar alvöru viðræður hafa hins vegar farið fram um laun eða aðra lykilþætti kröfugerðarinnar.

Þeir félagsmenn sem vinna eftir samningi sem rennur út í næstu viku munu áfram fá greitt í samræmi við þann samning, nema um afturvirkar kjarabætur verði samið í yfirstandandi kjaraviðræðum.