Könnuninni lýkur á mánudag

Könnuninni lýkur á mánudag

Á mánudaginn lýkur kjarakönnun FIT, sem send var félagsmönnum með tengli í tölvupósti og SMS-skilaboðum í síðustu viku. Þátttaka í könnuninni hefur slegið öll fyrri met, þegar kemur að sambærilegum könnunum. Niðurstöðurnar verða félaginu gott veganesti í yfirstandandi kjaraviðræðum og munu veita dýrmæta innsýn í kjör félagsmanna.

Um leið og við þökkum fyrir góða þátttöku minnum við þá sem eiga eftir að svara á að gera það sem fyrst. Því fleiri sem svara könnuninni — því áreiðanlegri verða upplýsingarnar.

Þeir félagsmenn sem ekki hafa fengið upplýsingar um könnunina senda í tölvupósti eða í SMS-skilaboðum þurfa að skrá sig inn á „Mínar síður“, smella á „Skoða mínar upplýsingar“ og uppfæra netfang og/eða símanúmer. Sjá skýringarmyndir hér að neðan:

Þegar innskráningu er lokið skal smellt þar sem örin bendir: