Veiðikort og sértilboð á gönguferðum

Vakin er athygli á því að nú er hægt að kaupa Veiðikort næsta árs á orlofsvefnum. Kortið er tilvalin jólagjöf og veitir aðgang að 37 vatnasvæðum vítt og breitt um landið. Kortinu fylgir vegleg handbók þar sem eiginleikar hvers svæðis eru tíundaðir í máli og myndum. Kortið er niðurgreitt af félaginu og kostar aðeins 5.000 krónur.
Einnig er nú hægt að nýta Ferðaávísun til að kaupa aðgang að gönguferðum á sértilboði frá Útivist.
- Í fyrsta lagi er um að ræða pakka gönguferða sem heitir Fjallabrall. Þar er um að ræða 11 skipulögðar gönguferðir. Hópurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa einhverja reynslu af útivist og fjallgöngum. Gráðun ferða er 1-2 skór: Miðað við að dagsferðir séu ekki meira en um 15 km og hækkun í ferðum ekki meira en um 500 metrar. Gengið er 2x í mánuði að meðaltali, ein kvöldferð og ein dagsferð. Pakkinn kostar 34.500 kr.
- Í öðru lagi er hópur sem kallast Fjallfarar. Þar er um að ræða hóp sem gengur saman eina dagsgöngu og eina kvöldgöngu í mánuði. Hópurinn er fyrir fólk sem hefur reynslu af gönguferðum og vill ganga dagleiðir sem eru í meðallagi langar og með nokkurri hækkun. Dagskráin yfir árið er tvískipt og verður einn hópur frá janúar til maí og annar frá september fram í desember. Gönguleiðirnar eru fjölbreyttar að lengd og á hinum ýmsu svæðum. Verð 34.500 kr.
- Þriðji hópurinn kallast Everesthópur. Hann gengur á þrjá jökla á vorönn. Áður en farið er í jöklaferðirnar verða undirbúningsgöngur á áhugaverð fjöll í nágrenni Reykjavíkur, sem eru m.a. Esjan, Skarðsheiði, Botnsúlur og Hengill. Hópurinn er fyrir fólk sem hefur reynslu af gönguferðum og vill ganga á fjöll að vetri til og fara í jöklaferðir að vori. Ekki er sett krafa um reynslu að gönguferðum þó það sé vissulega kostur. Erfiðleikastig: Göngurnar eru „miðlungs erfiðar“ í byrjun og verða síðan meir kerfjandi þegar líður á dagskrána. Hentar þeim sem eru í ágætu líkamlegu formi og vilja auka það jafnt og þétt. Verð 48.000 kr.
Þessi tilboð eru sýnileg inni á orlofsvefnum.