Helstu atriði nýs kjarasamnings
Hvað felst í nýjum kjarasamningi?

Samiðn undirritaði fyrir hönd aðildarfélaga sinna framlengingu á kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins, sem gerður var árið 2019, í Karphúsinu á mánudag. Gildistími samningsins er stuttur, aðeins 15 mánuðir, eða frá 1. nóvember 2022 til 31. janúar 2024.
Meginmarkmið samningsins er að styðja við kaupmátt launa auk þess að veita heimilum og fyrirtækjum fyrirsjáanleika á óvissutímum. Mikil verðbólga og háir stýrivextir hafa undanfarin misseri dregið úr kaupmætti og þyngt greiðslubyrði lána íslenskra heimila. Samningurinn á að stuðla að stöðugleika og skapa forsendur fyrir langtímasamningi. Vinna við hann er þegar hafin.
Athygli er vakin á því að samningurinn kveður á um frestun viðræðna um önnur atriði en launalið í kröfugerðum aðila. Samninganefndir hafa samþykkt verkáætlun sem kveður á um að allri vinnu vegna þeirra atriða, sem sjá má í töflu hér að neðan, verði lokið í desember 2023.
Fylgst með þróun verðlags
Samhliða samningnum undirrituðu aðilar hans yfirlýsingu um skipun sameiginlegs starfshóps sem hefur það hlutverk að fylgjast með framvindu efnahagsmála, þróun verðlags og undirliggjandi þátta. Hópurinn mun funda mánaðarlega en mun einnig eiga fundi með fulltrúum Seðlabanka Íslands, fjármála- og efnishagsráðuneytis, Hagstofu Íslands auk innviðaráðuneytisins vegna húsnæðismála. Gangi forsendur kjarasamninga ekki eftir getur hópurinn greint orsakirnar og kallað eftir skýringum. Jafnframt munu aðilar samningsins skipa sérstaka forsendunefnd sem getur kallað til sérstaks fundar á milli aðila ef forsendur um þróun verðlags bresta.
Stuðningur stjórnvalda
Ríkisstjórnin hefur kynnt aðgerðir í tengslum við kjarasamninga sem eru til þess fallnar að styðja við markmið samningana um að verja kaupmátt og lífskjör fólks. Aðgerðirnar snúa einkum að stuðningi við lífskjör lág- og millitekjufólks með markvissum aðgerðum í húsnæðismálum og auknum stuðningi við barnafjölskyldur.
Hækkun launa
- Samningurinn, sem er afturvirkur, kveður á um 6,75% launahækkun frá 1. nóvember síðastliðnum.
- Laun geta þó að hámarki hækkað um 66.000 krónur á grundvelli samningsins á samningstímanum. Samningurinn kveður með öðrum orðum á um hlutfallshækkun launa með krónutöluþaki.
- Kjaratengdir liðir hækka um 5% frá 1. nóvember, nema um annað hafi verið samið.
- Einingarverð í ákvæðisvinnu hækkar um 6,75%, einnig frá 1. nóvember.
- Um áramótin verður fyrsta útborgun launa á grundvelli nýs kjarasamnings, verði hann samþykktur í atkvæðagreiðslu. Þá eiga atvinnurekendur jafnframt að greiða út það sem upp á launin vantaði fyrir nóvembermánuð, í ljósi afturvirkra hækkana.
Desember- og orlofsuppbót
Samningurinn kveður á um hækkun desember- og orlofsuppbóta. Desemberuppbót fyrir hvert almanaksár miðast við fullt starf verður 103 þúsund krónur árið 2023. Hækkunin frá árinu 2022 nemur 5.000 krónum.
Orlofsuppbót fyrir hvert orlofsár (1. maí til 30. apríl) miðað við fullt starf verður 56.000 krónur árið 2023. Það er einnig 5.000 króna hækkun frá árinu 2022. Samanlagt hækka desember- og orlofsuppbætur því um 10.000 krónur á milli ára.
Hagvaxtarauki efndur
Í lífskjarasamningnum frá 2019 var kveðið á um sérstakar viðbótarlaunahækkanir launa ef efnahagsþróun á samningstímanum yrði hagfelld. Sérstök forsendunefnd hefur lagt mat á þær forsendur en hækkanirnar hafa komið til framkvæmda 1. maí. Með þeim launahækkunum sem framlengdur kjarasamningur kveður á um hefur hagvaxtarauki sem átti að koma til greiðslu 1. maí 2023 verið efndur og honum raunar flýtt.
Ekki mun koma til frekara endurmats á hagvaxtarauka samkvæmt kjarasamningi 2019-2022.
Vinnutími
Í samningnum er ákvæði sem fjallar um styttingu vinnuvikunnar. Iðnaðar- og tæknifólk hefur á grundvelli lífskjarasamningsins tekið tvö skref þar að lútandi. Annars vegar hefur á vinnustöðum verið samið um að unnar séu 36 virkar vinnustundir samhliða niðurfellingu kaffitíma. Hins vegar hefur vinnutími, þar sem samkomulagi hefur ekki verið náð, verið styttur í 36 stundir og 15 mínútur á viku.
Aðilar samningsins eru sammála um að einfalda vinnutímaákvæði kjarasamnings og samræma. Frá og með 1. febrúar 2024 verður vinnutími á viku 36 virkar vinnustundir Deilitala dagvinnutímakaups verður frá sama tíma 156.
Tímarammi
Í samningnum segir að tilkynna skuli um afgreiðslu kjarasamninga miðvikudaginn 21. desember. Þá skulu niðurstöður kosninga liggja fyrir.
—
Verkáætlun vegna annarra atriða en launaliðs
Verkefni | Verkefni hefst | Verkefni lýkur |
Kjarasamningur fyrir tæknigreinar | Er hafið | Október 2023 |
Vinna við bókanir, einföldun og samræming | Er hafið | Nóvember 2023 |
Vinnutími, sveigjanleiki, fjarvinna og réttur til að aftengjast | 7. mars 2023 | Desember 2023 |
Vaktavinna | 7. febrúar 2023 | Desember 2023 |
Ákvæðisvinna | 14. febrúar 2023 | Júní 2023 |
Önnur mál (veikindi, iðnnemar, launakerfi, verkefnaráðningar, flutningslína o.fl. ) | 14. mars 2023 | Desember 2023 |
Kosning
Kosið verður rafrænt um nýjan kjarasamning næstu vikuna. Kosningin hefst klukkan 12 á hádegi, miðvikudaginn 14. desember. Hún fer fram á fram á mínum síðum og stendur yfir til miðvikudagsins 21. desember.