Kosning hafin um nýja kjarasamninga
Hægt er að kjósa til miðvikudagsins 21. desember

Kosning um nýja kjarasamninga Samiðnar, fyrir hönd Félags iðn- og tæknigreina og fleiri félaga, er hafin. Samningarnir voru undirritaðir 12. desember síðastliðinn og kveða meðal annars á um 6,75% hækkun launa. Þeir gilda til 31. janúar 2024.
Kosningin fer fram á mínum síðum og stendur yfir til hádegis miðvikudaginn 21. desember.
Í nýútkomnu Fréttabréf FIT ávarpar formaður félagsins félagsmenn vegna nýja samningsins. Hann hvetur fólk til að samþykkja hann.
„Samningurinn veitir okkur gott svigrúm til að vinna að nýjum langtímasamningi þegar efnahagslegar aðstæður verða orðnar betri. Sú vinna er þegar hafin. Ég hefði ekki skrifað undir samninginn nema um væri að ræða ásættanlega niðurstöðu fyrir okkur. Ég hvet ykkur til að kynna ykkur efni samningsins vel og taka þátt í atkvæðagreiðslu um samninginn. Ég mæli heilshugar með samþykkt hans,“ skrifar Hilmar Harðarson í pistlinum.
FIT minnir á kynningu á kjarasamningum sem haldin verður á Stórhöfða 31 í dag, miðvikudag, klukkan 17;00.