Samningarnir kynntir í dag

Kynningarfundur verður haldinn á Stórhöfða 31 í dag vegna nýrra kjarasamninga. Kynningin hefst klukkan 17:00 en þar gefst félagsmönnum tækifæri á að spyrja spurninga vegna samningsins sem undirritaður var við Samtök atvinnulífsins á mánudag.

Kosning um nýjan kjarasamning milli Samiðnar og Samtaka atvinnulífsins hefst á hádegi í dag. Samningurinn var undirritaður í Karphúsinu á mánudag og gildir til rúmlega eins árs.

Kosið er á mínum síðum en hægt er að kjósa til miðvikudagsins í næstu viku.

Hér má kynna sér efni samningsins.

Helstu atriði nýs kjarasamnings