Fundir utan höfuðborgarsvæðisins

Kjarasamningar kynntir í Vestmannaeyjum, á Selfossi og á Akranesi

Félag iðn- og tæknigreina kynnir nýundirritaða kjarasamninga Samiðnar utan höfuðborgarsvæðisins eftir helgina. Mánudaginn 19. desember verður samningurinn kynntur í Vestmannaeyjum og á Selfossi. Fundurinn í Vestmannaeyjum verður á Einsa Kalda klukkan tólf á hádegi. Sídegis, klukkan 17, verður fundurinn haldinn á Selfossi, við Austurveg 56.

Á þriðjudaginn verður sams konar kynning haldin á Akranesi.  Kynningin fer fram í húsnæði Samfylkingarinnar við Stillholt og hefst klukkan 17.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta.

Hér má kynna sér nýja kjarasamninga