Kjarasamningar samþykktir

Kosningaþátttakan aldrei verið meiri

Félag iðn- og tæknigreina og önnur aðildarfélög Samiðnar hafa samþykkt kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins sem undirritaðir voru 12. desember síðastliðinn. Kosningum lauk í dag, 21. desember.

Samningurinn felur í sér breytingar og viðbætur kjarasamninga aðildarfélaga Samiðnar og þá sérkjarasamninga sem teljast hluti þeirra:

  • Aðalkjarasamning Samiðnar f.h. Félags iðn- og tæknigreina í málmiðnaði, byggingariðnaði og skrúðgarðyrkju og Samtaka atvinnulífsins
  • Kjarasamning Samiðnar f.h. Félgags- iðn og tæknigreina í byggingariðnaði og Samtaka atvinnulífsins vegna meistarafélaga í byggingariðnaði innan Samtaka iðnaðarins.
  • Kjarsamning Samiðnar og Félags pípulagningameistara
  • Kjarasamning Samiðnar og Bílgreinasambandsins
  • Kjarasamning SA og Félags- iðn og tæknigreina vegna snyrtifræðinga
  • Kjarasamning SA og Félags iðn- og tæknigreina vegna hársnyrtisveina

Auk þess var samþykktur kjarasamningur Félags iðn- og tæknigreina við garðyrkjubændur.

Samningarnir kveða meðal annars á um hækkun launa um 6,75% og samtals tíu þúsund króna hækkun desember og orlofsuppbótar, frá því sem var. Þeir gilda til 31. janúar 2024, eða í rúmt ár.

Kauptaxtar hækka margir hverjir meira en félagið vinnur nú að því að yfirfara kauptaxta. Þær upplýsingar verða birtar hér á síðunni eins fljótt og auðið er.

Samningarnir voru samþykktir með 77,3% greiddra atkvæða. Rúm 16% höfnuðu samningunum. 6,5% skiluðu auðu.

Kosningaþátttaka var með miklum ágætum og jókst um 35% frá síðustu kjarasamningum. Að þessu sinni greiddu 25,6% félagsmanna atkvæði og hefur hún ekki verið meiri frá stofnun FIT. Þeim félagsmönnum sem kusu eru færðar sérstakar þakkir fyrir þátttökuna.

Niðurstöðurnar (PDF skjal hér) má sjá hér að neðan: