Desemberuppbót 2014

Desemberuppbót fyrir árið 2014 miðað við fullt starf er kr. 73.600 fyrir eftirtalda kjarasamninga: Samtök atvinnulífsins, Meistarasamband byggingamanna, Bílgreinasambandið og Ríkið.
Uppbótin greiðist eigi síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember. Heimilt er með samkomulagi við starfsmann að uppgjörstímabil sé frá 1. desember til 30. nóvember ár hvert í stað almanaksárs.
Iðnnemar fá greidda desemberuppbót í samræmi við vinnuframlag, þ.e. þurfa ekki að hafa skilað 12 vikum í vinnu á síðustu 12 mánuðum.
Reikniregla fyrir iðnnema og starfsmenn hluta úr ári.
Desemberuppbót deilt með 45 – sinnum unnar vikur, = desemberuppbót. ATH að uppgjörstímabilið sé 12 mánuðir.
Til athugunar vegna starfsloka
Áunna desemberuppbót og orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótanna. Sama gildir um öll laun þar með talið orlof.
Upphæð desemberuppbótar í eftirtöldum kjarasamningum er:
Reykjavíkurborg kr. 79.600
Strætó kr. 79.600
Orkuveitan kr. 85.400
Landsvirkjun kr. 105.933
Samband íslenskra sveitafélaga á eftir að semja
Sjá nánar í viðkomandi kjarasamningum á heimasíðu FIT
Desemberuppbót innifelur orlof, er föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Greiða ber öll gjöld og skatta af desemberuppbót eins og öðrum launum.
Desemberuppbót greidd út jafnharðan
Þeir starfsmenn sem fá greidda desemberuppbót jafnharðan með tímakaupi fá greidda kr. 7.200 eingreiðslu 15. desember og kr. 9,62 hækkun á desemberuppbót pr. klst. eða kr. 35,38 frá 1. maí að telja.