Desemberuppbót 2019

Starfsmenn sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi 1. desember eiga rétt á desemberuppbót.
Desemberuppbót 2019 er fyrir eftirtalda kjarasamninga:
- Samtök Atvinnulífsins,
- Meistarasamband byggingamanna,
- Snyrtifræðinga,
- Bílgreinasambandið,
- Félag pípulagningameistara og
- Samband Garðyrkjubænda.
Kr. 92.000
- Samband íslenskra sveitafélaga
Kr. 115.850
Uppbótin skal greiðast í síðasta lagi 15. desember miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Sá tími sem starfsmaður er í fæðingarorlofi telst sem starfstími við útreikning desemberuppbótar.
Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki fá fulla desemberuppbót, annars hlutfallslega eftir starfsframlagi á árinu
Fullt starf telst vera 45 unnar vikur (fyrir utan orlof).
Reikniregla: Desemberppbót deilt með 45 margfaldað með unnum vikum