Niðurstöður kosninga um verkfallsboðun í álverinu

Nú liggja fyrir niðurstöður úr atkvæðagreiðslum félaga okkar sem starfa hjá ISAL um verkfallsaðgerðir til að knýja á um endurnýjun kjarasamnings, þar sem samningsdrög liggja á borðinu en Rio Tinto hyggst ekki skrifa undir.
Í kosningu um vinnustöðvun Ísal féllu atkvæði félaga í FIT þannig:
Já sögðu 86,67%
Nei sögðu 6,67%
Auðir seðlar 6,67%
Niðurstaðan er því afgerandi og mikill meirihluti félagsmanna hlynntur verkfallsaðgerðum.