Atkvæðagreiðsla um kjarasamning í ÍSAL

Atkvæðagreiðsla um samkomulag um framlengingu kjarasamnings milli Samtaka atvinnulífsins vegna Rio Tinto á Íslandi hf. annars vegar og VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna, Rafiðnaðarsambands Íslands vegna Félags íslensra rafvirkja og Félags rafeindavirkja og FIT – Félags iðn- og tæknigreina hins vegar hefst 24. mars 2020 klukkan 10:00.
Rafræn atkvæðagreiðsla um samkomulag um framlengingu kjarasamnings milli Samtaka atvinnulífsins vegna Rio Tinto á Íslandi hf. annars vegar og VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna, Rafiðnaðarsambands Íslands vegna Félags íslensra rafvirkja og Félags rafeindavirkja og FIT – Félags iðn- og tæknigreina hins vegar hefst þriðjudaginn 24. mars 2020 kl. 10:00 og stendur til kl. 10:00 föstudaginn 27. febrúar 2020.
Hægt er að greiða atkvæði í gegnum heimasíður félaganna. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna allra félaganna fer fram á skrifstofu Verkalýðsfélagsins Hlífar að Reykjavikurvegi 64, 220 Hafnarfirði, þriðjudaginn 24. mars frá 10:00 til 12:00, miðvikudaginn 25. mars frá 10:00 til 12:00 og fimmtudaginn 26. mars frá 10:00 til 12:00. Vegna COVID-19 faraldsins eru félagsmenn þó hvattir til þess að greiða atkvæði sitt með rafrænu hætti.
Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér vel innihald samningsins og nýta atkvæðisrétt sinn. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða kynntar mánudaginn 30. mars 2020.