Takmörkum heimsóknir á skrifstofur FIT vegna Covid-19

untitled 384984838

Við hvetjum félagsmenn til að nýta sér rafræn samskipti við skrifstofur okkar eins og kostur er til að minnka smithættu.

Hægt er að sækja nánast alla þjónustu og upplýsingar frá félaginu rafrænt.

untitled 384984838

Flestar upplýsingar eru á hér á heimasíðunni og hægt er að senda fyrirspurnir á fit@dev.fit.is eða hringja í síma 540 0100.

Til að sækja um styrki eða kanna réttindi sín í sjóðum félagsins eiga allir félagsmenn að hafa aðgang að mínum síðum og fljótlegast og einfaldast er að nýta þann kost.

Orlofshúsin

Allar upplýsingar um orlofshúsin og leiga á þeim fer fram á Orlofssíðum FIT.

Sjóðir FIT

Upplýsingar um sjóði félagsins.

Sjúkrasjóður

Upplýsingar um styrki úr Sjúkrasjóði FIT

Umsókni um styrki úr Sjúkrasjóði fara í gegnum MÍNAR SÍÐUR. Þar eru einnig allar upplýsingar um þau fylgigögn sem þarf að skila.

Sjúkradagpeningar

Til að sækja um sjúkradagpeninga þarf að skila:

Þetta er hægt að senda í tölvupósti til fit@dev.fit.is merkt Sjúkrasjóði

Útfararstyrkur

Til að sækja um útfararstyrk þarf að skila eftirfarandi:

Þetta má senda í tölvupósti á netfangið: fit@dev.fit.is merkt sjúkrasjóði.

Menntasjóður

Upplýsingar um styrki úr Menntasjóði FIT

Umsóknir um styrki úr Menntasjóði fara í gegnum MÍNAR SÍÐUR. Þar eru einnig allar upplýsingar um þau fylgigögn sem þarf að skila.

Launagreiðendur

Upplýsingar um iðgjaldagreiðslur til félagsins, innheimtuaðila og skilagreinar er að finna hér.