Afgerandi niðurstaða í atkvæðagreiðslu í álverinu í Straumsvík

ISAL

Stéttarfélög starfsmanna Rio Tinto á Íslandi hf. luku í dag atkvæðagreiðslu um boðun verkfalla til að knýja á um nýjan kjarasamning.

ISAL

Félagsmenn í fimm af sex stéttarfélögum samþykktu að boða til verkfalla með yfirgnæfandi meirihluta, þ.e. félagsmenn Félags rafeindavirkja, Félags íslenskra rafvirkja, FIT, VM og Hlífar. Félagsmenn VR felldu hins vegar boðun verkfalla á jöfnu. 

Af öllum greiddum atkvæðum voru yfir 80% fylgjandi boðun verkfalla.

Félagsmenn stéttarfélaganna sem samþykktu verkfallsboðun hefja því skæruverkföll föstudaginn 16. október 2020.

Ef ekki semst fara sömu starfsmenn í ótímabundið allsherjarverkfall frá og með 1. desember 2020. Kröfur starfsmanna hljóða upp á launahækkanir sambærilegar þeim sem samið var um í lífskjarasamningnum.