Aðalfundur Félags iðn- og tæknigreina 2021 verður haldinn laugardaginn 29. maí kl. 10

Aðalfundur Félags iðn- og tæknigreina 2021 verður haldinn laugardaginn 29. maí kl. 10 að Stórhöfða 31, jarðhæð (gengið inn Grafarvogsmegin).
Dagskrá:
1. Skýrsla félagsstjórnar um starf félagsins á liðnu
starfsári.
2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til umræðu
og afgreiðslu.
3. Ákvarðanir teknar um ávöxtun sjóða félagsins.
4. Kjöri stjórnar lýst.
5. Kosning trúnaðarráðs, kjörstjórnar, skoðunarmanna
reikninga, og uppstillinganefndar.
6. Kosning endurskoðenda.
7. Tillögur um fulltrúa á ársfundi lífeyrissjóða sem FIT er aðili að.
8. Önnur mál.
Hádegismatur í boði félagsins.
Stjórnin
Félagið veitir ferðastyrk
til þeirra félagsmanna
sem búa í meira
en 40 km fjarlægð frá
fundarstað.
