Námskeið í bílgreinum hjá Iðunni á haustönn

Haustönn Iðunnar – fræðsluseturs er að hefjast innan tíðar og er um að gera að tryggja sér pláss. Athygli er vakin á því að fjarkennsla er í boði á mörgum námskeiðum.
Námskeið í bílagreinum á næstunni eru;
28. ágúst
Endurmenntun atvinnubílstjóra
Lög og reglur
Markmiðið er að bílstjórinn þekki helstu atriði í lögum og reglum um vöru- og farþegaflutninga og um stór ökutæki sem atvinnutæki og geri sér grein fyrir ábyrgð bílstjóra á ástandi og notkun ökutækis á hverjum tíma.
1. september
Endurmenntun atvinnubílstjóra
Farþegaflutningar
Bílstjórinn þekki atriði er lúta sérstaklega að akstri hópbifreiða, farþegaflutningum, ábyrgð bílstjóra á öryggi farþega og almennt að þjónustuhlutverki bílstjóra, náttúruvernd, ferðamennsku, mjúkum akstri o.fl. Hann þekki ákvæði í lögum og reglum um flutning farþega og sérbúnað hópbifreiða.
4. september
Endurmenntun atvinnubílstjóra
Fagmennska og mannlegi þátturinn
Bílstjóri skilji að þekking og færni er undirstaða fagmennsku. Bílstjórinn þekki þætti í daglegu lífi og starfsumhverfi sem hafa áhrif á öryggi hans, heilsufar og andlega og líkamlega líðan. Hann þekki einkenni þreytu og streitu og viðbrögð þar við.
17. september
IMI rafbílanámskeið – þrep 2.2 (Akureyri)
Reglubundið viðhald raf- og tvinnbíla
Námskeiðið er hannað fyrir þá sem vinna við almennar viðgerðir og viðhald og gætu þurft að þjónusta raf/tvinn bíla. Einnig veitir námskeiðið þá þekkingu og hæfni til að vinna á öruggan hátt við bifreiðar sem orðið hafa fyrir tjóni og hætta er á að háspennukerfi hafi skemmst.
