Hópuppsagnir eru og eiga að vera neyðarúrræði fyrirtækja

Ályktun frá stjórn hjá Húsi Fagfélaganna

Verkalýðshreyfingin er einn af hornsteinum íslensks samfélags. Því er það ekki einkamál eins félags ef það gengur í berhögg við gildi hreyfingarinnar.

Hópuppsagnir eru og eiga að vera neyðarúrræði fyrirtækja til að forða greiðsluþroti eða alvarleg vá sé fyrir dyrum í rekstri fyrirtækja. Því er aldrei hægt að réttlæta skipulagsbreytingar eða jafnlaunavottun sem ástæðu hópuppsagna. Þá skal áréttað að verja skal trúnaðarmenn stéttarfélaga í hópuppsögnum.

Ekki er hægt undir neinum kringumstæðum að verja þær gjörðir naums meirihluta stjórnar Eflingar – Stéttarfélags sem hafa verið kynntar og harma Fagfélögin á Stórhöfða að stjórnin hafi ekki dregið  þessa gjörð í heild sinni til baka.

 

download.png