Ungir menn með bjarta framtíð

Framtíðin er björt hjá ungum nýútskrifuðum sveinum í Félagi iðnog tæknigreina. Við eigum einstaklega hæfileikaríkt ungt fólk sem hefur ákveðið að leggja fyrir sig nám í iðn-, verk-, og tæknigreinum en við höfum verk að vinna í því að kynna og auka veg þessara greina og þá sér í lagi að horfa til þess að auka hlut ungra kvenna. Fréttabréf FIT ákvað að taka viðtal við nokkra nýútskrifaða sveina og athuga hvaða skoðanir þau hafa á náminu og starfinu.
Sigþór Fannar Grétarsson og Ásbergur Ragnarsson voru að útskrifast sem sveinar í blikksmíði og starfa báðir hjá Íslofti blikkog stálsmiðju. Þeir eru 24 ára og æskuvinir frá þriggja ára aldri þegar þeir kynntust á leikskólanum heima í Grundarfirði. Þeir segjast eiginlega hafa verið saman síðan.
Hvernig byrjaði þetta með námið?
Við bara svona duttum inní þetta, ég fékk áhuga og kom svo félaganum inní þetta, segir Ásbergur sem varð fyrri til að fá þá hugmynd að fara að læra blikksmíði. Jú við vorum alltaf búnir að ætla í einhverskonar iðngrein. Vorum aðeins búnir að kynnast iðnaðarvinnu í Grundarfirði svo við þekktum til þess að aðrir höfðu reynslu úr iðngreinum, þ.á.m. blikkfaginu. Námið var mjög fínt. Við náttúrulega lærðum í Borgarholtsskóla, vorum mjög ánægðir þar. Komið var vel til móts við okkur og við höfðum góða og hvetjandi kennara. Svo skiptir miklu máli að vera með góðan meistara, við vorum mjög heppnir þar. Við lærðum hjá Gunnari Valda í Íslofti blikk- og stálsmiðju. Þannig að það var fínt að vera nemi í greininni og við héldum hópinn mjög vel. Einhverjir kláruðu með okkur og einhverjir klára næst.
Af hverju þetta iðnnám frekar en annað, hvað heillaði við blikksmíði?
Ég vissi nú varla hvað blikksmíði var þegar ég sótti um námið, segir Sigþór og hlær. En svo datt maður bara alveg inní þetta þegar maður kynntist verkefnunum. Þetta er mjög áhugavert, skapandi og fjölbreytt. Því meira sem maður kynnist verkefnum og kemst inní þau, því meiri áhugi kviknar í raun og veru.
Hvernig er þá kynning á svona námi í ykkar grunnnámi?
Í grunnskóla fær maður auðvitað að smíða smávegis úr við. Svo var það í framhaldsskólanum sem við fórum að læra smá grunnteikningu og fá að gera örlítið meira. Við vorum í FSN – Fjölbrautarskóla Snæfellinga. Svo lærðum við mest tengt faginu í Borgó.
Hvað er áhugaverðast í greininni og við þetta starf almennt?
Það er svo margt. Mikil fjölbreytni, mikið af alls konar smíði. Þetta er mjög víð grein, loftþrýstikerfi, klæðningar, það er svo margt sem tengist þessu. Virkilega skapandi að þurfa að finna lausnir og slíkt. Það er frábært þegar maður sér fullklárað verk sem hefur kannski tekið nokkra daga að finna útúr, þá er það mjög gefandi.
Hvernig ætti að standa að því að kynna iðngreinar betur fyrir ungu fólki?
Hægt væri að efla starfskynningar í skólum, alveg niður í grunnskóla, lofa krökkum að koma inná verkstæði í einn dag og kynnast því sem verið er að gera. Jafnvel að fá að prufa að smíða eitthvað einfalt eða búa eitthvað til. Það myndi hjálpa mikið við kynningu á grunnnámi. Og endilega byrja í grunnskólum svo krakkar geti íhugað að skoða slíka vinnu, enda er oft hægt að fá t.d. sumarvinnu í þessum störfum. Það er endalaust mikið að gera í þessum fögum og ekkert lát á verkefnum.
Hvernig er svo í vinnunni? Alltaf gaman?
Það er alltaf gaman í vinnunni, við höfum haldið vel saman og vinnum mjög mikið saman að verkefnum sem er líka alveg frábært.
Eina sem telst refsing í starfinu er að þurfa að vinna lengi við einangrun. Auðvitað getur þetta starf líka tekið svolítið á. Það getur verið erfitt að vinna úti og lyfta þungu og slíkt. En það heldur okkur bara í góðu formi, við fáum ágætis líkamlega hreyfingu útúr vinnunni líka sem hentar auðvitað mörgum vel. Slíkt venst vel og heldur okkur bara í þjálfun.
Sjáið þið fyrir ykkur áframhaldandi nám innan sviðsins?
Tvímælalaust sjáum við fyrir okkur möguleika á slíku, t.d. meiri tæknifræði tengda greininni, eða meistaranám. Við vorum einmitt að skoða bæklinginn hjá IÐUNNI fræðslusetri, þar er ýmislegt sem við höfum tekið grunn að í Borgó og möguleikar á áframhaldandi viðbótarnámskeiðum. Þannig að það er ýmislegt að kynna sér þar í framhaldinu. Þetta er heldur alls engin endastöð heldur ef vilji er fyrir að halda áfram í frekara nám, þá er þetta bara eitt skref hvað það varðar.
Hvað sjáið þið fyrir ykkur í framtíðinni?
Beinast liggur við að halda áfram í blikkinu, sjá hvert áhuginn tekur mann og reyna svo að bæta við sig og læra meira. Við mælum klárlega með námi í þessari grein og hvetjum krakka til að skoða þessar greinar. Við teljum að það þurfi að kynna þessar greinar betur, til að sýna fram á hversu skemmtilegt og gefandi starf í þessum iðngreinum er. Við heyrum mismunandi sögur af hvernig gengur á samningstíma og annað slíkt en ég held að flestir séu að koma ánægðir og sáttir út úr þessu fagi og öðrum viðlíka. Við erum allavega alveg alsælir með þetta val. Þetta er eins og annað nám og vinna, það fæst út úr þessu það sem maður setur inn. Ef maður hefur fyrir þessu og leggur sig fram og vandar sig fær maður það til baka.
Birtist fyrst í fréttabréfi FIT, í nóvember 2017.