Þetta er fín vinna fyrir stelpur

Kolbrún Arna Jónsdóttir var einnig við sveinsprófsafhendingu (nóvember 2017) en hún starfar hjá Litamálun, þar sem hún var á námssamningi. Kolbrún Arna náði þeim glæsilega árangri að vera hæst á sveinsprófi í málaraiðn. Við lögðum fyrir hana nokkrar spurningar um námið og starfið.
Hvers vegna málaraiðn?
Ég lauk stúdentsprófi af listnámsbraut í FB en vissi ekki alveg hvað ég vildi gera í framhaldinu og fór bara að vinna. Svo kom að því að mig langaði til að fara aftur í nám og gera eitthvað annað, vissi samt ekki alveg hvað svo þetta kom svolítið óvænt upp. Það var ein sem var að vinna með mér sem var í húsasmíði og önnur sem ég þekki var að byrja í húsgagnasmíði mér fannst þetta spennandi og fór að skoða þetta nánar. Þetta var algerlega eitthvað sem ég hafði ekki hugsað útí að fara bara í eitthvað iðnnám. Svo ég fór að skoða þessar iðngreinar til að koma mér í nám aftur. Datt í hug að fara í hársnyrtiiðn meðal annars. Svo ég dreif mig bara í skólann. Þá var mér fljótlega ýtt útí að fara strax á samning sem mér finnst mikill kostur því þá kemst maður strax að því hvort þetta sé eitthvað sem maður vill gera til framtíðar. Þetta er bæði mjög skemmtilegt og erfitt. Mér fannst ég ekki vita neitt hvað ég var að gera og hafði aldrei gert neitt svona lagað áður. Nema málað herbergið mitt einu sinni. En það er alltaf einhver sem aðstoðar og leiðir áfram. Svo kemur í ljós að þetta er ekkert það flókið. Það skiptir miklu máli að hafa góðan meistara og þar var ég mjög heppin. Auðvitað eru nemar látnir sópa svolítið fyrst, en þannig er það líklega í öllum fögum. Þetta byrjar smátt og svo fær maður að gera meira og meira. Svo ég er bara mjög ánægð með þetta val. Sparslvinna og slípun er svo sem ekki það skemmtilegasta í heimi og því fylgir oft mikið ryk en þetta er almennt bara mjög fín vinna.
Hvað með skiptingu milli kynja í þessu fagi?
Ég fæ oft hrós fyrir að vera stelpa í þessari grein en þetta er fín vinna fyrir stelpur. Það var önnur með mér í náminu en það er nokkuð langt í land með að kynin jafnist í þessu fagi sem og öðrum iðngreinum.
Mælirðu með þessari grein?
Já alveg fyrir fólk almennt. Sérstaklega tel ég iðnnám vera mjög gott fyrir þau sem eru örlítið óákveðin með hvað þau „Þetta er fín vinna fyrir stelpur“ Kolbrún Arna Jónsdóttir var einnig við sveinsprófsafhendingu en hún starfar hjá Litamálun, þar sem hún var á námssamningi. Kolbrún Arna náði þeim glæsilega árangri að vera hæst á sveinsprófi í málaraiðn. Við lögðum fyrir hana nokkrar spurningar um námið og starfið. vilja gera og vilja kannski vinna við það sem þau eru að læra samhliða náminu. Þetta er líka alltaf gott að hafa í farteskinu útí lífið.
Hvað er áhugaverðast við starfið?
Mér finnst bara alltaf svo gaman að mála, sérstaklega finnst mér gaman að lakka. Svo er alltaf svo gefandi að sjá útkomuna. Þegar verk hefst fyrst eru bara gifsplötur og allt út um allt en þegar búið er að mála verður allt svo hreint og tilbúið. Það er góð tilfinning að ljúka verki. Þetta er auðvitað líka skapandi. Ég er sérstaklega ánægð með að fólk er almennt farið að velja allskyns liti, þá er skemmtilegt að vinna úr slíkum verkefnum og sjá alla þessa liti sem fólk er að velja í húsin sín núna. Að því leyti til er gaman í faginu um þessar mundir. Mér finnst nánast alltaf gaman í vinnunni þó að auðvitað sé einhver dagamunur eins og í öðru. Þetta er auðvitað stundum subbuleg vinna og óneitanlega hreinlegra að sitja og vinna við tölvu en það er bara svo margt skemmtilegt og gefandi við þessi verkefni. Margir halda að þetta sé mun minna mál en þetta er, því það geta allir málað en það eru mörg atriði sem koma því við sem ekki endilega allir vita af eða pæla í. Ég kem oft skítug heim með málningu í hárinu og andlitinu, en það þrífst alveg úr. Þetta er almennt séð mjög fín vinna og ég mæli með því fyrir alla sem hafa minnsta áhuga á einhverju svona að skella sér og prófa.
Hvað sérðu fyrir þér í framtíðinni?
Ég er nú ekkert komin það langt ennþá. Er bara að njóta þess að vera búin með þennan áfanga. Ég er ekki alveg búin að ákveða næsta skref, sem gæti verið hvað sem er.
Hvernig getum við aukið áhuga ungs fólks á iðngreinum almennt og sérstaklega þinni grein, málaraiðn?
Helst bara að gera þetta sýnilegra. Ég sá þetta ekki fyrir mér, fyrr en ég vissi um einhverja aðra í svipuðu og fór og prófaði. Mér finnst vanta fleiri fyrirmyndir og meiri kynningu á öllum þessum fögum í skólum og helst alveg niður í grunnskóla. Þessi fög þurfa að vera sýnilegri, þetta var ekki einu sinni á radarnum mínum þegar ég var 16 ára og átti að vera hugsa um hvað ég vildi velja eða gera næst. Krakkar sem eru 16 ára þekkja yfirleitt ekki til þessara faga nema ef einhver fjölskyldumeðlimur vinnur beinlínis við fagið og þau kynnast því í gegnum það.
Hvernig er það í þinni fjölskyldu?
Já, pabbi minn er smiður en ég var svo sem ekkert að horfa til þess endilega. Það var enginn að ýta mér útí þetta, við systkinin áttum bara að velja okkar leið sjálf.
Birtist fyrst í fréttabréfi FIT, í nóvember 2017.