Ég hefði viljað fá betri kynningu á iðnnámi í grunnskóla

Döggvi Már Ármannsson tók stúdentspróf úr Flensborg og útskrifaðist í vélfræði úr Tækniskólanum og lauk nú í haust sveinsprófi í vélvirkjun. Hann var á námssamningi hjá Kletti sölu og þjónustu og starfar þar núna.
Hvað varð til þess að þú valdir þessa leið og þetta nám?
Ég var alls ekki á þessari leið þegar ég var í grunnskóla. Byrjaði bara á því að taka stúdentinn í Flensborg og ætlaði ekkert að fara áfram í skóla, var bara búinn að fá nóg af því að sitja á skólabekk. Svo fór ég samt að skoða háskólanám, var að skoða vélaverkfræði eða íþróttafræði, þannig að þetta var allt frekar opið hjá mér. En ég átti vin sem var í vélfræðinni og hafði sjálfur aðeins verið í mótorkrossi sem áhugamál og var þá eitthvað búinn að vera að fikta í vélum í gegnum það. Svo að á endanum ákvað ég bara að prufa þetta og skráði mig í Vélskólann. Þá kom í ljós hvað þetta var mikið verklegt og skemmtileg vinna. Þannig að ég kláraði allt þetta verklega og endaði svo með því að taka bóknámið í kjölfarið. Ég mæli samt ekki endilega með því að gera þetta í þessari röð. Það var bara allt þetta verklega sem ég var búinn með sem togaði mig í bóklega námið líka til að klára. Skólastofunám hentar mér í raun og veru ekkert vel en það endaði þannig að ég lauk 5 ára námi í vélfræði. Mér líkar mjög vel að vinna í höndunum og finnst þetta hafa hentað mér betur en bóknám. Þó ég væri ekki lélegur í bóknámi hefur áhuginn alltaf verið í verklegri vinnu. Ég vann við fagið á sumrin og eitthvað með skólanum. Svo tekur samningurinn við eftir 5 ára nám svo þetta er ansi langt.
Eftir á að hyggja hefði verið best að fara beint í þetta nám eftir grunnskóla. Mig langaði í verklegt nám strax þá. Sérstaklega þar sem námið felur í sér stúdentspróf líka. En það var smá pressa á mér að fara bara í framhaldsskóla og ljúka stúdentsprófi þaðan. Það er svolítið ætlast til þess að maður fari þessa leið, að klára stúdentinn í framhaldsskóla. Auðvitað er ég samt feginn að vera með þessa menntun sem ég er með í dag. Því mögulega hefði ég lokið sveinsprófi og látið þar við sitja og væri þá ekki með sömu menntun og ég er með núna. Í Flensborg hafði ég klárað félagsfræðibraut svo ég fékk eitthvað metið en ekki mikið. Ég er til dæmis núna með stúdentspróf bæði af félagsfræði og náttúrufræðibraut. Það er nokkuð sérstakt. Ég hefði alveg getað farið og tekið réttu fögin í Flensborg strax ef ég hefði verið búinn að ákveða framhaldið þá. Þá hefði ég alveg getað sleppt slatta af greinum og verið mun fljótari að klára mitt nám ef ég hefði farið strax eftir því sem ég hef mestan áhuga á. Ég hafði í raun engan áhuga á félagsvísindagreinum en vildi bara klára stúdentinn og valdi einföldustu leiðina til þess á þeim tíma.
Ég mæli klárlega með að krakkar íhugi hvar áhuginn liggur og kanni námsmöguleika í samræmi við það. Þá skiptir félagslífið líka miklu máli. Því það er alltaf hluti af skólanum og hefur mikið að segja með hvort það er gaman í skólanum þennan tíma sem maður er þar.
Svo þú mælir með námi í þessari grein?
Já. Maður lærir alveg helling í þessu námi og það er góður grunnur uppá framtíðina. Kosturinn við Vélskólann er einnig að maður fær stúdentsprófið um leið. Svo ef maður vill fara í háskólanám þá er það opið. Ef einhver ætlar sér aftur á móti bara að læra einhverja iðn er einfaldast að fara beint í hana og taka sveinspróf. Það þarf samt að vera auðvelt að geta tekið stúdentsprófið samhliða iðnnáminu ef áhugi er fyrir því. Ef fólk vill hafa allar dyr opnar verður það að vera auðvelt. Í öðrum löndum er til dæmis þetta nám sem ég tók, yfirleitt á háskólastigi. Svo ef ég færi til hinna Norðurlandanna að vinna væri ég með nám samsvarandi BS gráðu þar. Þannig að þetta er mjög alþjóðlegt nám.
Einnig er hægt að sérhæfa sig í mismunandi greinum. Það eru fullt af námskeiðum innan fyrirtækjanna sem veita ákveðin réttindi þó að það séu ekki prófgráður. En ef ég myndi t.d. ákveða að sækja um vinnu erlendis, myndu slík réttindi telja.
Hvernig er svo að starfa við fagið?
Ég var á samningi hjá Kletti sölu og þjónustu og vinn þar núna og er mjög ánægður þar. Vinnan er mjög fjölbreytt og skemmtileg. Bátavinna úti á landi og viðgerðir hér og þar. Það gerir starfið enn skemmtilegra að vera að vinna á mismunandi stöðum. Ég mæli með þessu námi og fagi fyrir alla sem hafa áhuga á vélum og tækni yfirleitt og þá sem vilja gera eitthvað með höndunum. Þetta er reyndar nokkuð mikil karlagrein. Það eru yfirleitt bara 2-3 stelpur í skólanum og svo er einhverra hluta vegna mikið um stráka utanaf landi í þessu fagi. Það er eins og fleiri hér á höfuðborgarsvæðinu fari í háskólanám.
Hvað er hægt að gera til að kynna þetta nám betur?
Ég hefði viljað fá betri kynningu á iðnnámi í grunnskóla. Það er bara svo algengt að gert sé ráð fyrir að maður fari í menntaskóla til að geta farið í háskóla. Þá fer maður bara þá leið. Það væri til dæmis hægt að nýta betur lífsleikniáfanga til að kynna mismunandi störf og námsleiðir. Það kom til dæmis enginn frá Vélskólanum að kynna skólann þegar ég var í grunnskóla. Mögulega kom einhver frá Iðnskólanum í Hafnarfirði að kynna hann enda var ég í grunnskóla þar, rétt hjá Iðnskólanum.
Sumarvinna kemur líka sterk inn. Það hefur mikil áhrif hvað krakkar eru að gera á sumrin og hvernig störfum þau kynnast í gegnum það. Mín sumarvinna hefur alltaf verið í einhverri iðn. Ég var t.d. að vinna í blikksmiðju meðal annars. Fyrirmyndir skipta líka máli og hvað fólk í kringum mann er að gera. Það gefur hugmyndir og vekur oft áhuga. Þannig mætti kynna betur þessa möguleika í grunnskólunum eða að greina betur áhuga hjá nemendunum og gera það fyrr í náminu, eða strax í grunnskóla.
Hvað sérðu fyrir þér í framtíðinni?
Frekara nám er alls ekki útilokað. Það eru alls konar möguleikar opnir með þessa menntun. Þetta nám opnar ýmsar dyr þar sem það felur í sér alþjóðleg réttindi. Ég gæti farið og unnið nánast hvar sem er í heiminum með mín réttindi. Eins er þetta mjög fjölbreytt svið sem hægt er að vinna við eftir Vélskólann. Sumir fara að starfa við kælitækni eða vélaviðgerðir eins og ég og aðrir fara til sjós. Svo það eru margir möguleikar sem við höfum innan þessa fags. Vonandi hef ég einhverntímann líka tök á að vinna erlendis. Það væri draumur. En ég er ekkert búinn að ákveða framhaldið núna. Er búinn með þetta og hæstánægður með að vera með nám sem gefur mér mikla möguleika. Það er auðvelt að fá vinnu núna, bæði á sjó og landi og tekjumöguleikarnir eru góðir.
Birtist í fréttabréfi FIT í nóvember 2017.