Góð þátttaka á námskeiði um lífeyrismál

Ákveðið hefur verið að bæta við öðru námskeiði

Fullbókað er á námskeið fagfélaganna um lífeyristöku sem fram fer þriðjudaginn 8. nóvember. Þar sem færri komust að en vildu hefur verið ákveðið að halda annað sams konar námskeið daginn eftir, miðvikudaginn 9. nóvember.

Samtals höfðu 90 manns skráð sig á námskeiðið þriðjudagsins en aðeins hægt að taka á móti 60. Af þeim sökum var ákveðið að endurtaka námskeiðið daginn eftir, á sama tíma á sama stað; klukkan 17:00 í fundarsalnum á Stórhöfða 31, á jarðhæð.

Þeir sem ekki komast að á þriðjudaginn geta mætt á miðvikudag í staðinn.

Skráning fer fram hér.