Vetrarfærð að orlofshúsum

Félagið getur ekki tekið ábyrgð á að færð spillist ekki

Þeim félagsmönnum sem eiga bókuð orlofshús á næstunni er bent á að sækja sér upplýsingar um færð og veður áður en þeir leggja af stað. Vetrarþjónusta er breytileg eftir orlofssvæðum og því ekki hægt að ganga að því vísu að rutt hafi verið að öllum bústöðum.

Í þessu samhengi má benda á að mikill snjór hefur fallið undanfarna daga, ekki síst á Suðurlandi. Félagið getur ekki tekið ábyrgð á að færð spillist ekki. Leigutakar eru því á eigin ábyrgð.

Félagsmönnum er bent á að fylgjast vel með færð á vef Vegagerðarinnar en upplýsingar um umsjónarmenn orlofssvæða og -húsa er að finna á leigusamningi sem gerður var þegar hús var bókað.