Félögin á bakvið FIT

Félag iðn- og tæknigreina var stofnað 12. apríl 2003. Saga FIT er þó í raun miklu lengri því félög sem standa á bak við FIT eiga rúmlega 100 ára sögu. Þessi félög eiga athyglisverða sögu sem ekki má gleymast.

Félög iðnaðarmanna sem mynduðu FIT eru eftirfarandi í aldursröð.

Nafn félags og stofnár

Múrarafélag Reykjavíkur var stofnað árið 1917 í Bárufélagshúsinu. Aðalhvatamenn að félagsstofnuninni voru þeir Óli Ásmundsson, Kornelíus Sigmundsson og Ólafur Jónsson.

Fyrsti formaður félagsins var Einar Finnsson. Frumkvöðlarnir höfðu allir unnið við nýbyggingu Nathans og Olsens, Reykjavíkurapótek, og byggt var á árunum 1916 til 1918.

Múrarafélag Reykjavíkur sameinaðist Félagi- iðn og tæknigreina 1. Janúar 2009.

null
Málarameistarafélag Reykjavíkur var stofnað þann 26. febrúar 1928 í baðstofu iðnaðarmanna við Vonarstræti. Stofnfélagar voru 16 að tölu.

Tilgangur félagsins skyldi m.a. vera að efla samvinnu meðal málarameistara og stuðla að menningu og menntun stéttarinnar, gæta í hvívetna hagsmuna félagsmanna og vera málsvari félagsmanna gagnvart almenningi og hinu opinbera.

Á fyrsta fundi félagsins var stjórn kosin, lög félagsins samþykkt og árgjaldið ákveðið 10 kr. og innborgunargjald kr. 15. Fyrstu stjórn félagsins skipuðu þeir Einar Gíslason formaður, Ágúst Lárusson ritari og Helgi Guðmundsson gjaldkeri. Undanfari stofnunarinnar voru bein og óbein áhrif er lögin um iðju og iðnað, svo og lögin um iðnnám voru samþykkt árið 1927, að iðnaðarmenn skipa sér í sérfélög meistara og sveina.

Ekki er hægt að segja annað en að ötullega hafi verið unnið að hagsmunamálum félagsins frá upphafi og margir menn hafa lagt þar hönd á plóg í hinum ýmsu trúnaðarstörfum fyrir félagið. Mannaskipti í stjórn félagsins hafa ekki verið mjög tíð í gegnum árin, því einungis 15 félagar hafa gegnt t.d. formennsku í félaginu frá stofnun þess og þar af hafa 3 af þessum 15 stjórnað félaginu í samtals 48 ár, en það eru þeir Einar Gíslason, fyrsti formaður félagins og jafnframt aðalhvatamaður að stofnun þess, hann gegndi formennsku samtals í 21 ár.

Ólafur Jónsson samtals í 17 ár og Jón E. Ágústsson samfellt í 10 ár.