Fréttir
Þriðja námskeiðinu bætt við
Mikil eftirspurn eftir námskeiði um lífeyristöku
Vegna mikillar eftirspurnar hefur þriðja námskeiðinu um lífeyristöku verið bætt við í vikunni. Fyrsta námskeiðið er á morgun, þriðjudag og það annað á miðvikudag. Fullbókað er á bæði námskeiðin. Því hefur þriðja námskeiðinu verið bætt við; fimmtudaginn 10. nóvember. Námskeiðið hefst klukkan 17:00 í fundarsalnum á Stórhöfða 31 en Fagfélögin standa sameiginlega að námskeiðunum. Á námskeiðinu verður farið yfir helstu þætti lífeyriskerfisins og hvernig það virkar. Rætt verður um stoðirnar sem mynda lífeyrisgreiðslur og reynt að svara ýmsum spurningum sem varða lífeyrismál. Athugið að makar félagsmanna eru velkomnir á námskeiðið, að undangenginni skráningu. Skráning fer fram hér eða í síma 5400100....
Lesa grein