Fréttir
Desemberuppbótin á almennum markaði, að meðtöldu orlofi, er 103.000 krónur og skal greiðast í síðasta lagi 15. desember miðað við starfshlutfall og starfstíma. Starfsmenn sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi 1. desember eiga rétt á desemberuppbót. Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda desemberuppbót líkt og aðrir. Sá tími sem starfsmaður er í fæðingarorlofi telst sem starfstími við útreikning desemberuppbótar. Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla desemberuppbót. Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof. Desemberuppbót ólíkra samninga: Almenn desemberuppbót*: 103.000...
Lesa grein